25. mars 2008 klukkan 19:18
Hann Hamar fór í gær alla leið norður á Akureyri. Og hann keyrði þangað og var alveg rosalega stilltur alla leiðina. Klapp Klapp
Svo nú er Tindur bara einn eftir með mömmu sinni. ég held hann sakni Hamars aðeins því mamma hans en nú ekki í mkilu leikstuði þessa dagana þar sem hún er búin að vera á lóðaríi. Svo viljum við heldur ekki að þau lendi saman, það væri nú ekki sniðugt
En hann Hamar er kominn með heimasíðu:
http://dyraland.is/dyr/71503
Endilega skoðið hana
Svo getiði farið í tengil hér við hliðina sem heitir video og þá farið þið inná síðu þar sem eru video af hvolpunum.
Þetta er samt enn í vinnslu en það eru nokkur video komin inn!
Heyriði við sjáumst svo
Sólskinsgeisla Kvöld Roðadís/ Mollý
02. janúar 2008 klukkan 15:10
Jæja, þá er bara komið 2008, ég er ekki búin að vera dugleg
en hún Hekla okkar er farin og er komin með heimasíðu,
http://dyraland.is/dyr/68872
og svo er hann Þumall líka farinn, og hann er líka kominn með heimasíðu
http://dyraland.is/dyr/69051
Og það gengur alt vel hjá þeim
Svo fer hún Askja núna um miðjan janúar, alla leið upp í Borgarnes, og þar eru allir mjög spenntir
Tindur og Hamar eru þá bara 2 eftir en eru auðvitað alveg dúndur hressir allan daginn.

Steinsofandi kríli
Svo ætla ég að reyna að setja inn einhverjar nýjar myndir
kv.Birna, Mollý, Askja, Tindur og Hamar
Sólskinsgeisla Kvöld Roðadís/ Mollý
18. nóvember 2007 klukkan 12:51
Jæja í dag þá fengu þeir í fysta skipti að borða og það gekk bara mjög vel, urðu reyndar pínu subbulegir.Svo keyptum ég og pabbi litla bolta og einn lítinn bangsa fyrir þá til að leika með og þeir eru mjög hrifnir af bangsanum(og mamman líka)
Það gengur allt rosa vel og nú ætla ég að setja inn myndir.
Munið svo að skrifa í gestabókina
kv.Birna, Mollý, Hekla, Askja, Tindur, Þumall og Hamar:D


setImgWidth();
setImgWidth();
Sólskinsgeisla Kvöld Roðadís/ Mollý
13. nóvember 2007 klukkan 19:15
jiminn, þeir eru svoooo sætir greyin, farnir að opna augun og labba um:)
Þið verðið bara að afsaka fréttaleysið
voða sæt
jújú, eins og ég nefndi áðan þá eru þau búin að galopna augun og líka farin að heyra ansi vel
fór áðan inn til þeirra og sagði góðan daginn, og þeir bara vöknuðu, tilbúnir að leika sér smá
fleiri myndir á morgun eflaust
kv.Birna , Mollý og hvolparnir 5
Sólskinsgeisla Kvöld Roðadís/ Mollý
23. október 2007 klukkan 19:21
Já þessir hvolpar eru nú aldeilis sprækir en við samt þurft að gefa 2 pela
annars eru þeir allir að taka spena og það er nóg mjólk handa öllum.
ég er búin að taka helling af myndum en þar sem ég er ekki með nóg pláss hér inná ætla ég að setja þær inn annar staðar og kanski hér, ef ég get, læt ykkur bara vita hvar;)

Þeir liggja hjá henni allan daginn voðalega sætt
Blár:Þumall
Appelsínugulur: Hamar
Gulur:Hekla
og hin eru Askja(hjá Heklu) og Tindur sem er í hálsakotinu hjá mömmu mollý.
Þau heita sem sagt öll eftir íslenskum fjöllum sem er voða sætt:D
Hekla(gulur) Tindur(þessi efsti) og einhver annar, sé það ekki alveg, Askja eða Hamar
Endilega haldið áfram að vera dugleg að fylgjast eð, ég reyni að gera upp reglulega og endilega skrifið í gestabókina, okkur finnst svo gaman að lesa það:D
Sjáumst voff
Birna, mollý, Hekla, Askja, Tindur, Þumall og Hamar.
Sólskinsgeisla Kvöld Roðadís/ Mollý
20. október 2007 klukkan 22:53
já í dag, 20.okt fæddust 5 sætir hvolpar
allt gekk eins og í sögu
2 tíkur og 3 rakkar
Hekla, Askja, Tindur, Þumall og Hamar.
Það eru komnar myndir inn í albúmið
Svo vil ég líka leiðrétta mistök hér fyrir neðan , netfangið er siggilis@simnet.is en ekki hotmail!
Kv.Birna
Sólskinsgeisla Kvöld Roðadís/ Mollý
08. október 2007 klukkan 20:55
Sólskinsgeisla Kvöld Roðadís/ Mollý